Trúin og lífið
Almanak – 4. september 2010

Morgunlestur: Jer 22.13-19

Ríkir þú sem konungur
af því að þú sýnir yfirburði í byggingum úr sedrusviði?
Át faðir þinn ekki líka og drakk?
En hann lagði stund á rétt og réttlæti
og honum vegnaði því vel.
Hann rak réttar hinna umkomulausu og snauðu
og allt gekk vel.
Er það ekki að játa mig?
spyr Drottinn.

Kvöldlestur: Am 5.4-7, 10-15

Leitið hins góða en ekki hins illa,
þá munuð þér lifa
og þá verður Drottinn, Guð hersveitanna, með yður
eins og þér hafið sagt.
Hatið hið illa og elskið hið góða,
eflið réttinn í borgarhliðinu.
Þá má vera að Drottinn, Guð hersveitanna, miskunni sig yfir þá
sem eftir eru af ætt Jósefs.

Bæn

Drottinn Kristur, frelsa mig frá skeytingarleysinu og tilfinningadoðanum andspænis neyð hinna snauðu. þegar þjáður og smáður verður á vegi mínum, sýn mér þá hvernig ég get satt hungur þitt, svalað þorsta þinn, boðið þér inn til mín. Sýn mér hvernig ég get þjónað þér í þínum minnstu bræðrum.

Sálmur (sb. 22)

Hvar sem er unnið, hugur þinn starfar,
hús vor og tæki eru þín verk.
Þú vilt vér teljum vort það, sem gefur
viskan þín rík og höndin sterk.
(Sigurbjörn Einarsson)

Minnisvers vikunnar

Kristur segir: „Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ (Matt 25.40b)

Yfirlit

Um almanakið

Í almanakinu er ein síða fyrir hvern dag ársins. Hér finnur þú lestra dagsins, sálmvers og bænir auk fróðleiks. Þú getur skráð þig á póstlista til að fá texta dagsins senda á hverjum morgni. Staðfesting um skráningu er send í tölvupósti.


Nafn:
Netfang:

Almanak
Sálmabók
Bænir