Þjáningin þarfnast orða, en einhver verður að grípa orðin, einhver óttalaus óhrædd(ur) við sársauka sorgar minnar.
Lena Rós Matthíasdóttir · 3. september 2010
Kynferðislegt-ofbeldi · sársauki · þjáning · þögn · þöggun ·
Þjáningin þarfnast orða, en einhver verður að grípa orðin, einhver óttalaus óhrædd(ur) við sársauka sorgar minnar.
Lena Rós Matthíasdóttir · 3. september 2010
Kynferðislegt-ofbeldi · sársauki · þjáning · þögn · þöggun ·
Ýmislegt er sagt þegar vekja á athygli á nýrri bók og gera hana söluvænlega. Sú upphrópun að Guð hafi ekki skapað alheiminn er sannarlega athyglisverð, ekki síst þegar í hlut á jafn þekktur og virtur vísindamaður og Stephen Hawking.
Gunnar Jóhannesson · 3. september 2010
Sköpun-alheimsins · Miklihvellur · tilvist-Guðs · Stephen-Hawking
Þjóðkirkja er kirkja þjóðar, vill veita þjóðinni allri þjónustu sína og eiga með henni samleið. Slík kirkja gengur með þjóðinni allri í gleði og sorg, af því að þjóðin vill eiga með henni samleið, án þess þó að önnur trúfélög njóti ekki sama frelsis og allir borgarar ríkisins fulls trúfrelsis.
Þórhallur Heimisson · 31. ágúst 2010
ríki-og-kirkja · þjóðkirkja · ríkiskirkja · þjóð-og-kirkja
Það sem ég hef lært af skóla lífsins er m.a. það að þau eru sönn orð fræði- og listamannsins Sigurðar Nordal að „sá sem vildi losna við alla sorg og söknuð, yrði að kaupa það því dýra verði að elska ekkert í heiminum.”
Jóna Hrönn Bolladóttir · 30. ágúst 2010
Stundum hugsa ég um það hvort mér hafi liðið betur þegar ég hataði af öllum kröftum. Það var einhvern veginn einfaldara. En þá lít ég á sjálfa mig og sé að einmitt hatrið gerði mig þreytta, rændi mig voninni, einangraði mig tilfinningalega og slökkti á gleði minni. Samt get ég ekki fyrirgefið, ekki í mínum eigin mætti.
Lena Rós Matthíasdóttir · 30. ágúst 2010
Fyrirgefning · hatur · sorg · kynferðislegt-ofbeldi · trú ·
Á borði mínu liggur bæklingurinn ,,Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum“ sem Þjóðkirkjan gaf út árið 2003 í íslenskri þýðingu Ragnheiðar Margrétar Guðmundsdóttur. Bæklingurinn hefur að geyma framkvæmdaáætlun sem Lútherska heimssambandið stóð á bak við.
Pétur Björgvin Þorsteinsson · 26. ágúst 2010
siðgæði · kirkja · ofbeldi · lútherska-heimssambandið
Þegar vígður þjónn kirkjunnar misnotar manneskju með kynferði sínu, líkamlegum yfirburðum og valdi, gengur hann eins langt og hægt er frá heiti sínu og tekur sér stöðu með andstæðingum frelsarans, þeim sem vinna gegn lífinu.
Lena Rós Matthíasdóttir · 25. ágúst 2010
Kynferðislegt-ofbeldi · vígsluheit · iðrun · fyrirgefning · sannleikur · þögn
Börn sem sæta ofbeldi af hendi þeirra sem helst ættu að veita þeim skjól eru lítilmagnar. Ég get varla hugsað mér meiri lítilmagna en slík börn, varnarlaus og minnimáttar, beitt viðbjóðslegu ofbeldi af þeim sem þau treysta og elska. Prestar sem hafa vitneskju um barnaníð en þegja yfir því eru komnir í lið með níðingunum.
Svavar A. Jónsson · 22. ágúst 2010
kynferðisbrot · barnaníð · þagnarskylda · kynferðisofbeldi · vígsluheiti
Kynferðislegt ofbeldi er alvarleg staðreynd í samfélaginu. Allar stofnanir og félagasamtök, ekki síst þau sem vinna með og í þágu barna og unglinga þurfa að vera á varðbergi og skoða starfshætti sína í því ljósi. Umliðin ár hefur verið markvisst unnið að bættum vinnubrögðum í þessum efnum innan þjóðkirkjunnar.
Karl Sigurbjörnsson · 20. ágúst 2010
kynferðisofbeldi · ofbeldi · fagráð · misnotkun ·