Mikil umfjöllun hefur verið undanfarna daga um stöðu samkynhneigðra gagnvart hjónbandinu. Þjónar kirkjunnar eru töluvert margir sem styðja frumvarp um ein hjúskaparlög sem liggur nú fyrir Alþingi. Þetta eru lög sem þingheimur mun að öllu óbreyttu ...
Því miður er það samt svo að margt kristið fólk áttar sig ekki á því hversu mikil áhrif tíðarandin hefur á viðhorf þess til Biblíunnar. Án þess að taka eftir því nálgast það Biblíuna með því hugarfari sem viðurkennt er af fjöldanum. Og það hefur ...
Það er ekki margt vitað með vissu um ætt Maríu meyjar. Í Nýja testamentinu eru engar upplýsingar um hvar eða hvenær María hafi verið fædd né heldur er foreldra hennar getið. Í guðspjöllunum er María ávallt kynnt sem móðir Jesú. María var...

Mörg þúsund ára gömul bók, bókasafn reyndar með 66 bækur, stórar og smáar, sögurit, annála, ljóð og sálma, spekimál, tækifærisbréf. Elstu þættir Gamla testamentisins eru um þrjúþúsund ára gamlir. Yngsta rit Nýja testamentisins er frá því snemma á 2. öld eftir Krist. Þessi rit geyma mikla fjársjóði. Þau komu ekki svífandi ofan af himnum, þau eru rituð af fólki, sem innblásið var af anda Guðs, gripið af áhrifamætti hans. Þess vegna kallast Biblían Guðs orð. Það er ekki prentsvertan á síðum Biblíunnar sem er Guðs orð. En bókstafir hennar og orð eru verkfæri, eða eigum við að segja hljóðfæri heilags anda. Þess vegna verðum við að lesa hana með bæn um leiðsögn heilags anda.