Hvað var í kringum þig, var þitt nærsamhengi, þegar þú varst fóstur í móðurkviði? Það var vatn. Þú svamlaðir og fórst kollhnísa í legvökva. Hátíðnihljóðin, sem bárust eyrum þínum alla daga, voru frá hinu hraða rennsli blóðsins, vökvans, í æðum móður ...
Nú er svo komið að sumir íslendingar skammast sín fyrir að viðurkenna þjóðerni sitt. Það er dapurlegt að svo sé komið í umróti síðustu missera ...
Allt þar til stjórnarskráin 1874 tók gildi tilheyrðu allir Íslendingar hinni Evangelisk-lútersku kirkju sem með stjórnarskránni varð Þjóðkirkja Íslands. Allt til þess tíma var enginn Íslendingur utan trúfélags, enda óheimilt. Þó að trúfrelsi væri...

Í heilagri skírn er skírnþegi tekinn inn í kirkju Krists. Í hinni evangelisk-lúthersku kirkju, sem Þjóðkirkjan er hluti af, er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga. Samkvæmt fyrirmælum Jesú Krists er barn skírt til nafns föður og sonar og heilags anda. Það er helgað Guði með Orði hans og bæn og ausið vatni.
Um skírnina á vef þjóðkirkjunnar
| Vatn | Sigurður Árni Þórðarson | 22/03 2010 |
| Skírnarskipunin og rækjusalatið | Guðbjörg Jóhannesdóttir | 19/03 2010 |
| Að ógilda skírnarsáttmálann | Magnús Erlingsson | 11/11 2003 |