Hvað var í kringum þig, var þitt nærsamhengi, þegar þú varst fóstur í móðurkviði? Það var vatn. Þú svamlaðir og fórst kollhnísa í legvökva. Hátíðnihljóðin, sem bárust eyrum þínum alla daga, voru frá hinu hraða rennsli blóðsins, vökvans, í æðum móður ...

Lífið og tilveran öll er sköpunarverk Guðs. Allt sem Guð skapar er gott og viðheldur lífinu, elur og nærir. Lífið er heilagt og hefur eigið gildi. Guð felur manninum að vera ráðsmaður sköpunarverksins og um leið er hann hluti þess. Þeirri köllun er honum ætlað að sinna af umhyggju og virðingu fyrir því sem lifir og grær. Lotning fyrir höfundi sköpunarverksins leiðir til ábyrgðar gagnvart því lífi og náttúru sem hann skapar. Frammi fyrir hinu sístæða sköpunarverki erum við hvött til að vera samverkamenn Guðs í að skapa betra líf og réttlátari heim.
| Vatn | Sigurður Árni Þórðarson | 22/03 2010 |
| Nói og gróðurhúsaáhrifin | Magnús Erlingsson | 12/01 2010 |
| Klukkur landsins | Karl Sigurbjörnsson | 10/12 2009 |
| Kristin trú og umhverfismál | Þórhallur Heimisson | 05/10 2009 |
| Mannmiðlægni, ráðsmennska og lífmiðlægni | Sigríður Guðmarsdóttir | 20/05 2009 |
| Hvar er græna kirkjan? | Kristín Þórunn Tómasdóttir | 05/05 2009 |
| Fræ í frosti sefur | Elínborg Sturludóttir | 22/04 2009 |